svæði njósnarans

svæði njósnarans

06.03.2007 18:10:52 / hexiaa

hmmm....er ekki kominn tími til að hætta ??

já góðir hálsar er ekki bara kominn tími til að hætta þessu bloggi

hélt þetta alveg hreint ótrúlega vel út það verður að viðurkennast

en takk fyrir að fylgjast með þið sem gerðuð það og ég er búin að búa

til síðu á barnalandi fyrir bumbukrúttið okkar

barnaland.is/barn/58977/

sjáumst kv Jóna og allir hinir


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 19:19:39 / hexiaa

Tíminn flýgur

Fór í hnakkarþykktarmælingu í dag......allt kom rosa vel út og var krílið heldur betur í stuði spriklaði og spriklaði fyrir okkur, alveg yndislegt að sjá þetta.....

þá er ég svona LOKSINS farin að trúa þessu :lol:

enda tími til komin held ég svo ég missi nú bara hreinlega ekki af meðgöngunni .....

er komin með pínu bumbu en það lítur svona frekar út eins og ég hafi fitnað....vona fari að koma  almennileg kúla bráðum hehe ekki bara bólginn magi..... :$

svo er ég búin að vera ógisslega dugleg að labba á kvöldin eftir vinnu, við göngugarparnir ég og Teresa tökum ca. svona klukkutíma labb um götur Grindavíkur  í alskonar veðrum 

en allavega ætla ekki að hafa þetta lengra í bili svo fólk haldi nú athyglinni í gegnum allan textann:haha:

 

heyrumst

KV stoltu verðandi foreldrarnir 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 11:30:34 / hexiaa

hæ hó

jæja þá er nú að hessast eftir mikla törn af morgunógleði og öllu því tilheyrandi.....

er núna ekkert búin að æla í 3 daga sem er bara frábært.......

hvolparnir stækka og verða sætari og sætari með hverjum deginum.....

var að bæta við smá myndum af þeim, þær koma á eftir hinum myndunum endilega kíkið á dúllurnar, var reyndar bara með 2 fyrirsætur núna hehe...... 

Annars bara fínt að frétta úr sveitinni.....

ætlaði bara láta vita af nýju myndunum.....

 LATER.....

 kv.

Jóna og allir hinir 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 21:11:44 / hexiaa

Búin að setja inn myndir af hvolpunum....

Jæja það hafðist loksins að setja inn þessar myndir þar sem ég er
enn á frumbyggjastigi hvað tækina varðar.....

en svo þegar við komum heim í dag var einn hvolpurinn dáinn :cry:
það hefur eitthvað verið að honum þegar hann fæddist því hann var alltaf svo skrítinn
hann var langminnstur af þeim öllum og ferlega veiklulegur greyið......

en svona er þetta, lífið ekki alltaf sanngjarnt....og nú er bara ein skvísa í hópnum og allt hitt eru strákar....frekar fyndin skipting

en allavega komnar inn myndir af dúllunum

kv sveitadurgarnir


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 20:47:21 / hexiaa

Ég er orðin AMMA !!!

já ég er orðin 6föld amma takk fyrir !!!!8|

Sleggja var að eignast sínu fyrstu hvolpa í dag,
og átti hún 6 gullfallega hvolpa !
2 voru svartir og 4 voru gulir!

þannig það verður nóg að gera hjá okkur hér í sveitinni á næstunni :lol:

Já og hún Sleggja mín valdi góðan dag því hann pabbi kall á afmæli einmitt í dag !
varð langafi á afmælisdaginn sinn! ekki leiðinlegt það !

langaði bara deila þessum yndislega atburði með ykkur

hef þetta bara stutt núna

kv úr frjósömu sveitinni :haha:



» 5 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 21:10:45 / hexiaa

Útskrifuð af Art Medica !!!

jæja fórum í 8v sónarinn í dag, geggjað gaman, fengum að sjá litla krílið okkar aftur og það var búið að stækka alveg heilmikið síðan við fórum síðast fyrir 2 vikum síðan.....
þá var það 3mm en er núna orðið rúmir 19 mm......
fengum mynd í þetta skipti sem var nátturlega mjög gaman.....
allt leit ljómandi vel út og vorum við útskrifuð af Art Medica í dag...!!!:haha:
en ég fékk samt ekki alveg að losna við lyfin og sprauturnar strax....þarf að haldfa áfram á því alveg fram á 12viku :$

þá er næst á dagskrá hnakkaþykktarmæling sem er gerð um 12vikurnar og svo fyrsti tími í mæðraskoðun vikunni þar á eftir.....þetta er orðið alveg geggjað spennandi....
maður er svona aðeins meira farin að trúa þessu.......

en jæja skrifa meira síðar
vildi bara láta vita hvernig gekk í dag

kv prinsessan og baunin


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 19:41:00 / hexiaa

Jæja góðir hálsar !!!!

jæja dömur mínar og herrar....njósnarar og aðrir lesendur...!!!

fór í sónar í morgun.....og það kom flottur hjartsláttur í litlu bauninni okkar :haha:
æðislegt að sjá að allt var í lagi....var orðin svoldið stressuð um að það væri farið.....
en það sást bara ein baun sem er nátturlega bara frábært.....annað hefði nátturlega bara verið bónus.....
en við hjúin erum alveg í skýjunum núna.......ógisslega montin ! 8)

en ég fékk enga mynd :( hann tók mynd sko, en svo þegar við vorum að fara
ákvað ég að rukka hann um myndina, og þá sagði hann að pappírinn hafi verið
BÚINN !! :evil:  WHY ME !!!!

en hann lofaði mér að ég fengi mynd næst þegar ég kæmi, sem er eftir 2 vikur

langaði bara láta ykkur vita

kveðja prinsessan á Búðum og baunin


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 20:25:13 / hexiaa

GLEÐILEGT NÝTT ÁR........ÁRIÐ MITT

Já gott fólk, nú er mitt ár að ganga í garð......:D
vona að allt fari að óskum.....svoldið svona skrítið að hugsa til þess að það sé einhver eða jafnvel einhverjIR inní þessari bumbu minni.....

fer svo í sónar 10.janúar og fæ þá vonandi að sjá eitthvað þarna inní og fá staðfestingu á því að allt sé á sínum stað, og hvort það séu 1 eða 2 bumbubúar
ekkert smá spennt...:haha:

er enn á bleika skýjinu mínu....enginn smá bensínsparnaður að geta farið á milli á bleiku skýji :lol:
æi ok þetta var ógeðslega glatað.....

en allavega læt vita hvernig fer....

kv Jóna og bumbubúarnir


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 00:48:40 / hexiaa

Jæja góðir hálsar !!!!

fór í blóðprufuna í morgun og fékk.....

JÁKVÆTT !!!!!!
það er að líða yfir mig úr hamingju
eftir allan þennan tíma
get ekki lýst því með orðum hvernig mér líður

ætla hætta monta mig áður en ég fer að grenja

kv Jóna og Kobbi
LOKSINS búin að fá leigjanda í bumbuna

» 6 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 01:02:04 / hexiaa

Jóla HVAÐ...!!!

Jæja vel liðið á jólin og maður er búin að borða á sig þokkalegt gat !!!
og græðgin alveg að depa mann og manni dauðlagar í meira þó maður sé komin með æluna uppí háls.....
fengum margar góðar gjafir......
fengum hnífaparatösku, sitthvorn koddann og koddaver, mynd í ramma af litlu sætu frænku minni, Amarican Dad seríu , svona kerta"búr" með steinum í ,
Bók-barn verður til :lol: , stóra ostakörfu, nafnakönnur, baðbombur, 2*rauðvínsflöskur, konfektkassa, glerskál, hnífapör í safnið, fulla körfu af nóa konfekti, fret-kall :lol: ,
Cars teiknimyndina...
svo gaf ég kobba simpsons 8 seríuna, Tool og Slayer (geisladiskar)
og hann gaf mér Pink og Sálina hans jóns míns (geisladiskar) og over the hedge......

sprakk svo úr hlátri í gærkveldi þegar við vorum búin að taka upp gjafirnar....fengum fullt af dvd myndum ALLT TEIKNIMYNDIR :lol::lol::lol:
en þetta var voða notalegt, vorum heima og tengdapabbi var í mat hjá okkur......
svo fékk Sleggja frá afa Þórir....Harley Davison derhúfu heheh.....búin að setja mynd af henni með hana hér í myndum neðst niðri til vinstri....

já og ég setti líka inn myndir af hestunum mínum fyrir þá sem ekki eru búnir að sjá þá.....og svo er líka ný skoðanakönnun

en bið að heilsa í bili
og hafið það gott það sem eftir er að jólunum

jólakveðja Jóna og co.

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 22:37:21 / hexiaa

Jólin nálgast óðfluga....

hmm....já það er bara verið að heimta meira blogg af mér, best að láta undan þrýstingi :lol:

en allavega þá er ég að bíða þessar 2 ENDALAUSU vikur eftir að fá að fara í blóðprufu og fá að vita hvernig til tókst með "the babymaking"
en ég fer í þessa blóðprufu núna 27.des

er að reyna hugsa sem minnst um þetta.....en gengur ekki sem skildi

en mig langar að óska ykkur öllum gleðilegra jóla, nenni ekki að hafa þetta langt núna svo það nenni einhver að lesa (held að enginn hafi nennt að lesa síðustu færslu, allavega kvittaði enginn fyrir sig) :$

en set svo kanski inn fréttir á miðvikudaginn ;)





» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 12:34:01 / hexiaa

óheppnisbylgja dundi yfir

Er ekki kominn tími á smá blogg ?

það er búið að seinka uppsetningunni fram á miðvikudaginn 13.des      svo  sem ekkert við því að gera, bjóst svosem alveg við einhverju        svona því ég er bara ég og óheppnin eltir mig og minn mann alveg á     röndum......

Kobbi ætlaði að vera svo dúllulegur og taka bílinn minn meðan ég var  að vinna og þrífa hann að utan, hann var alveg orðinn hvítur af seltu     og ógeði...... en ég fékk hann til baka klesstan að framan og ......ennþá  skítugann :cry:

Sama dag og bíllinn minn klesstist var hringt í Kobba frá hafnarstjóranum á bíldudal og sagt honum að báturinn hans væri að sökkva í höfninni, ætlaði Kobbi að rjúka af stað og reyna dæla uppúr honum áður en hann myndi sökkva......en það var brjálað veður og ófært vestur....þá hringdi hann í fyrrum skipsfélaga sinn og bað hann að redda þessu, sem hann gerði

Allt brjálað í Grindavíkinni útaf hestunum okkar, við sökuð um að hugsa illa um hestana og þeir væru vannærðir og ég veit ekki hvað og hvað......Gekk það langt að við vorum klöguð til Landbúnaðarstofnunar......fékk símtal frá þeim og þeir vildu fá að koma og skoða hrossin og aðstæður......ég bauð þá bara velkomna og sagði þeim að fólkið hérna væri bara eitthvað klikkað ég ætti örugglega feitustu hestana í sveitinni.....
þeir komu alla leið frá Selfossi og sáu bara ekkert athugavert við eitt né neitt hrossin hefðu það bara fínt....
Mér sárnaði samt þessar ásakanir hjá fólki.......að vera segja að ég hugsa illa um dýrin mín þegar það er ekki rétt er ógeðslega leiðinlegt !!
mér var alveg sama um söguna sem gekk í fyrra þegar ég átti að vera rækta hass í bílskúrnum hjá mér......mér var alveg sama um það
Æi fólk getur verið andstyggilegt....

Ég er búin að finna nöfn á 2 af 3 hestunum en þriðja er enn í vinnslu...gengur hægt....
Folinn er vindóttur (frekar dökkur litur) og með rosalega ljóst fax
og hann fékk nafnið Glófaxi en verður kallaður GLÓI
og önnur merin er brún (á hestamáli en á okkar máli er hún svört)
og hún fékk nafnið Dimmalimm og hún er gæfust af þeim öllum og svolítið forvitin ef maður stendur eitthvað þarna að athuga með vatnið eða eitthvað er eins og hún vilji koma til manns en þorir samt ekki að koma of nálægt....hún nátturlega þekkir þetta ekki, er að umgangast fólk í fyrsta sinn um ævina.....en svo er hin merin styggust af þeim öllum og hana vantar nafn......ég er búin að glápa á hana hellengi í marga daga en dettur ekkert í hug....Einhverjar tillögur ????

Fór á kaffihús í gær með Hönnu og Petru, svo kíkti Líney á okkur eftir vinnu og reyndar aðeins í kaffitímanum sínum líka þetta var voða gaman.....
En svo var komið brjálað veður þegar ég var að fara heim, hélt ég myndi hreinlega takast á loft og fljúga bílnum bara heim.....brjálaður hliðarvindur og rigning og rúðuþurkurnar drifu varla til baka á móti vindinum þannig ég sá ekki neitt í þokkabót, en ég komst heim á endanum

en jæja ég ætla reyna fara gera eitthvað að viti.......
var að baða hundinn ætla athuga hvort hún sé ekki að verða þurr eða hvort ég þurfi að þurka hana með hárblásara hehe.......henni finnst það reyndar ekkert leiðinlegt

en allavega ég er farin
 
OVER AND OUT

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 21:03:02 / hexiaa

Nýjar Fréttir

Jæja sorry með seinkunina á færslunni, er búin að vera í svo vondu skapi að ég nennti ekki að skrifa neitt.....:(
En ég tók gleði mína á ný í dag....:D

En ég fór semsagt til læknis á þriðjudaginn (sem var afmælisdagurinn minn) og hann tók þannan blessaða sepa sem var alveg hlægilega pínuponsulítill bara eins og pínulítill dropi....það er naumast hvað þetta þarf að vera hrikalega slétt allt saman....8|

en jæja svo fékk ég þessa hryllilegu martröð í svæfingunni, vaknaði hágrenjandi með einhverja konu standandi yfir mér að reyna vekja mig....:$
Mig dreymdi að Guðmundur (læknirinn) kom inn til mín og var að segja við mig að það væri bara ekki möguleiki fyrir mig að eignast barn og þau skildu ekkert í því af hverju þau sáu þetta ekki fyrr og eitthvað meira í þessum dúr.....fékk nátturlega taugaáfall með fyrrgreindum afleiðingum...en þetta var sem BETUR FER bara vondur draumur maður.....

Svo beið ég róleg og allt leit mjög vel út og Guðmundur ætlaði að hringja í mig daginn eftir jafnvel með einhverja dagsetningu handa mér fyrir uppsetninguna......og ég beið allan miðvikudaginnn og hann hringdi ekki......:evil: beið allan langan fimmtudaginn og hann hringdi ekki....:klikk: gafst svo upp á föstudeginum og hringdi í hann til að fá að vita eitthvað fyrir helgina....herðu þá bara, já þú mátt byrja taka töflurnar bara hmmm.....NÚNA... ég nátturlega bara vó, ég verð nú ekki komin heim fyrr en um 7 leitið í kvöld, en já það var allt í lagi ekki svo nojað bara byrja í dag.....þannig að já þarf semsagt að vera á þessum töflum í 17 daga, en ég á að koma í skoðun 8.des og ef allt lítur vel út þá fer ég í uppsetninguna 11.des !!!! vííííí..... ætla samt að taka þessu með fyrirvara miðað við það hvað ég er búin að vera óheppin er ég ekki alveg að trúa því að það sé að fara koma að þessu....en ég vona auðvitað það besta og er hæfilega bjartsýn...

En já svo var ég nátturlega í fríi þarna á afmælisdaginn og kíktu Pabbi, Björg, Örn Steinar , Kristjana og Eva Þóra á mig seinnipartinn í kaffi og meððí.....
Það var æðislegt og fékk ég brjálaðar gjafir frá þeim....takk fyrir mig enn og aftur ...þið eruð biluð

en nóg í bili má ekki vera of langt svo einhver nenni að lesa :lol:

Endilega þið sem kvittið aldrei, megið fara gefa ykkur fram ;)

Kveðja Jóna á bleika skýinu í sveitinni með von um leigjanda í bumbu :haha:



» 5 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 20:17:48 / hexiaa

Ég er LIFANDI !!! VÍÍÍÍÍ....

ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag , ég á afmæli ég Jóna , Ég á afmæli í dag veiiiii......

fór til læknis í dag fæ betri fréttir á morgun, þar sem ég var hálf gúgú eftir svæfinguna....þannig ég er að spá í að lofa bloggfærslu annaðkveld þegar ég kem heim úr vinnunni....þá verð ég með einhverjar fréttir um frammhaldið ok
allir sáttir við það ?
ef ekki hringið þá bara í lögfræðinginn minn og ræðið við hann
hlýtur að finnast einhver lausn á því.....
en ef þetta er ekkert vandamál þá heyrumst við á morgun

kveðja þangaðtil Jóna h

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 18:33:09 / hexiaa

BACK FROM HELL

Jæja þá er mín bara útskrifuð af spítalanum, en ég var send þangað seinnipartinn á föstudaginn (3. nóv) búin að vera þar semsagt í 6 LANGA og hvalarfulla dag......:cry:

Málið var að eggjastokkarnir mínir bólgnuðu svo mikið að þeir héldu ekki vökva lengur, og þar af leiðandi byrjaði blóðið að þykkna....og vökvi að safnast í kviðnum á mér....
Ég þurfti að liggja með vökva í æð frá föstudeginum og losnaði við það á miðvikudaginn, var alveg orðin aum í æðinni minni af öllu þessu auka rennsli...

Ég blés út og var eins og kasólétt kona....og það þrengdi svo að öllum líffærunum að ég hélt ég væri hreinlega að springa....
þyngdist um 15 kg á 4 dögum, svo var stungið á bumbuna og "tappað" af henni 2 sinnum, í fyrra skiptið var tekið 1 líter af vökva og hitt skiptið 1,25 lítrar....8|

Svo var ég send í lungna-röngen-myndatöku því ég náði varla andanum og var komin vökvi í kringum lungun líka í þokkabót og þurfti ég auka súrefni..
Ég lá bara og grenjaði úr sársauka og er nú alveg útúrstungin eftir verkjalyf, hormónalyf, blóðþynningarspautur og blóðprufur......

En það var rosalega vel hugsað um mig þarna og var ég ein á stofu allan tímann sem mér finnst rosalegur munur (ekki það að ég liggi oft á spítala og veit hvað sé best, en ég svona ímynda mér það hehe)

En nóg af einhverri sjúkrasögu......svo er bara halda áfram og á að panta tíma hjá lækninum eftir helgi og sjá hvernig frammhaldið verður......
vona þetta fari bara takast hjá okkur núna, þetta er orðið ágætis basl allt saman......

Ætla láta þetta duga í bili
vildi bara láta vita að ég er lifandi
skrifa meira seinna

kv Sjúkklíngurinn :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Dagsetning
9. febrúar 2010